Innlent

Dró bát af strandstað í Kópavogshöfn

Atli Ísleifsson skrifar
Báturinn hafði slitnað frá bryggju í höfninni í rokinu og rekið upp í grjótvarnargarð.
Báturinn hafði slitnað frá bryggju í höfninni í rokinu og rekið upp í grjótvarnargarð. Vísir/Vilhelm
Stefnir, bátur Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, dró Garp 2018 af strandstað í Kópavogshöfn fyrr í kvöld. Báturinn hafði slitnað frá bryggju í höfninni í rokinu og rekið upp í grjótvarnargarð.

Afar hvasst var á höfuðborgarsvæðinu í kvöld en varað hafði verið við stormi. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á vaktinni í Kópavogshöfn í kvöld og myndaði björgunaraðgerðir í bak og fyrir.

Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×