Hellisheiðin opnuð á ný Stefán Árni Pálsson skrifar 6. mars 2015 13:16 Margir lentu í vandræðum vegna veðurs og ófærðar en Hellisheiði var lokað í morgun.
Vegagerðin hefur opnað Hellisheiði en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Hálkublettir eru á Sandskeiði og hálka á Hellisheiði en krapi í Þrengslum. Snjóþekja og éljagangur er á Mosfellsheiði og hálka og snjóþekja í uppsveitum á Suðurlandi. Vegfarendur eru beðnir um að fylgjast með upplýsingum um færð og veður. Snýst í S- og SV-átt með éljum og krapaéljum sunnan- og vestanlands. Kólnar niður undir frostmark á láglendi og víða verður hált við þessar aðstæður þegar líður á daginn. Blint í éljum vestan til, einkum á fjallvegum s.s. á Holtavörðuheiði undir kvöld. Stormur síðdegis á Snæfellsnesi og þar hviður 30-40 m/s norðan til frá því um kl. 14 og fram á kvöld. Flughált er á Krísuvíkurvegi. Hálkublettir og éljagangur er á Reykjanesbraut. Á Vesturlandi eru hálkublettir á flestum leiðum en krapi og skafrenningur á Bröttubrekku en hálka á Holtavörðuheiði. Krapi og éljagangur er á Vatnaleið en þungfært á Fróðárheiði og einnig er óveður á norðanverðu Snæfellsnesi. Hálka eða snjóþekja er víða á Vestfjörðum og skafrenningur á fjallvegum. Ófært og óveður er á Hálfdán, Mikladal og Kleifaheiði. Snjóþekja og óveður er á Kletts- og Hjallahálsi. Hálka og óveður er í Ísafjarðardjúpi, Reykhólasveit og á Innstrandavegi. Á Norðurlandi vestra er hálka og óveður í Húnavatnssýslu. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Vatnsskarði og Skagastrandarvegi. Hálka og óveður er á Siglufjarðarvegi. Hálka eða hálkublettir eru á Norðurlandi eystra og sumstaðar skafrenningur en ófært er á Dettifossvegi. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Mývatnsheiði og Mývatnsöræfum. Það er hálka eða hálkublettir og sumstaðar éljagangur og skafrenningur á vegum á Austurlandi. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Möðrudalsöræfum og hálka og óveður á Vatnsskarði eystra. Greiðfært er frá Fáskrúðsfirði og með suðausturströndinni að Öræfasveit en þar taka við hálkublettir eða hálka.
Veður Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Sjá meira