Lengst af verður hægari vindur og þurrt fyrir norðan og austan.Vísir/Vilhelm
Veðurstofa Íslands segir að á morgun gangi í auðaustanátt með 18 til 25 metra á sekúndu með snjókomu undir hádegi. Fyrst suðvestanlands, en lengst af verður hægari vindur og þurrt fyrir norðan og austan.
Síðdegis er spáð rigningu eða slyddu á Suður- og Vesturlandi. Þá segir á vef Veðurstofunnar að talsverð úrkoma verðu um landið Sunnan- og Suðaustanvert.
Annað kvöld mun svo snúa í suðvestlæga átt og draga úr vindi og úrkomu. Smám saman mun hlána.