Handbolti

Halldór Stefán áfram í Árbænum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir/valli
Halldór Stefán Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Fylkis í Olís-deildinni í handbolta, verður áfram í Árbænum.

Halldór Stefán framlengdi samning sinn við Fylki um tvö ár í dag, en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Árbæjarliðinu.

„Það er mikið gleðiefni að Halldór hafi ákveðið að starfa áfram í Árbænum en hann er einn af efnilegustu þjálfurum landsins,“ segir í fréttatilkynningunni.

„Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur hann stýrt kvennaliði félagsins í þrjú tímabil og á þeim tíma hefur liðið tekið miklum framförum. Það lenti í 11.sæti árið 2013, 9 sæti árið 2014 og í 7. sæti í ár.“

Kjartan Gylfason og Halldór Stefán handsala samninginn í dag.mynd/fylkir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×