„Stjórnarmenn geta verið dregnir til ábyrgðar“

Laun stjórnarmanna HB Granda voru hækkuð um 33,3 prósent á síðasta aðalfundi og fara úr 150 þúsund krónum á mánuði upp í 200 þúsund. Formaður stjórnar fær tvöfaldan hlut eða 400 þúsund. Þetta hefur verið harðlega gangrýnt hjá verkalýðshreyfingunni og á Alþingi.
Sjá einnig: Óæskilegar og afleitar hækkanir að mati forsætisráðherra
„Láðst hefur í umræðunni að gera grein fyrir þeim ástæðum sem kunna að liggja til grundvallar ákvörðun aðalfundar um hækkun fjárhæðar stjórnarlauna,“ segir Áslaug sem situr sjálf ekki í stjórn neins fyrirtækis.
Rannveig Rist sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hún ætlar ekki að þiggja þóknunarhækkun sem hluthafar í sjávarútvegsfyrirtækinu HB Granda samþykktu að veita stjórn fyrirtækisins.
Sjá einnig: Segir stjórnarlaun í HB Granda meðal þeirra lægstu
„Eftir fall bankakerfisins eru auknar kröfur gerðar til vandaðra stjórnarhátta félaga og þar með til hæfni stjórnarmanna. Með stjórnarsetu í félagi gengst stjórnarmaður undir ríka ábyrgð og verða laun hans að endurspegla þessa ábyrgð. Stjórnarmenn geta síðar verið dregnir til ábyrgðar ef þeir bregðast eftirlitshlutverki sínu.“
Tengdar fréttir

Laun stjórnarmanna hækkuð um 33 prósent: „Það gilda bara allt önnur lögmál um þetta fólk“
Laun stjórnarmanna HB Granda voru hækkuð um 33,3 prósent á síðasta aðalfundi og fara úr 150 þúsund krónum á mánuði upp í 200 þúsund.

Óæskilegar og afleitar hækkanir að mati forsætisráðherra
Undarlegt að stjórnarmenn í HB Granda hækki laun sín um tugi prósenta en bjóði starfsfólki bara íspinna, segir formaður VG. Forsætisráðherra tekur undir þá gagnrýni.

„Þetta er hvorki sanngjarnt gagnvart mér né börnunum mínum“
Fiskverkakonur eru reiðar „Scrooge“ Loftssyni og stjórn HB Granda.

Allir fyrir einn og einn fyrir alla
Ákvörðun um að hækka laun stjórnar HB Granda hefur hleypt illu blóði í kjaraviðræður. "Setti allt á hvolf,“ segir formaður VSFK. Efling krefst afturköllunar ákvarðana HB Granda. Við ákveðum ekki stjórnarlaun í einstökum fyrirtækjum, segir fram

Óttast að hluthafar HB Granda flýðu ef arðgreiðslunum yrði breytt
Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda, segir ekki koma til greina að draga þriggja milljarða arðgreiðslu og þriðjungshækkun á þóknun stjórnarmanna til baka hjá útgerðarfyrirtækinu HB Granda.

Telja ákvörðun HB Granda blauta tuska framan í starfsmenn fyrirtækisins
Stjórn Eflingar hefur sent frá sér ályktun eftir að í ljós kom að HB Grandi ákvað að hækka laun stjórnarmanna um 33 prósent.

Sýður á starfsfólki HB Granda: „Erum alltaf að setja ný met en fáum aldrei neitt“
Fiskverkafólk hjá HB Granda er verulega ósátt við 33 prósenta launahækkanir stjórnarmanna HB Granda.

Rannveig ætlar ekki að þiggja launahækkun frá HB Granda
Segir hækkunina á milli ára úr takti við stöðu kjaramála á Íslandi

„Þú þvingar ekkert svar upp úr mér“
Kristján Loftsson gefur ekkert fyrir gagnrýni Vilhjálms Birgissonar á hækkun stjórnarlauna í HB Granda og segist ekki vilja svara því hvort hækka eigi lágmarkslaun til að ná sátt á vinnumarkaði.