Arsenal græðir milljónir ef Barcelona vinnur Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2015 13:30 Thomas Vermaelen og Luis Suarez. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Arsenal munu örugglega halda með Barcelona á móti Juventus í komandi úrslitaleik Meistaradeildarinnar því sigur spænska liðsins mun færa enska liðinu milljónir í kassann. Arsenal seldi Thomas Vermaelen til Barcelona fyrir tímabilið fyrir fimmtán milljónir punda en í kaupsamninginum voru einnig margskonar bónusar. Athyglisverðasti bónusinn samkvæmt heimildum Guardian var örugglega sá ef Thomas Vermaelen vinnur meistaradeildina með Barcelona. Heimildir Guardian herma að Barcelona þurfi þá að borga Arsenal þrjár milljónir punda eða 618 milljónir íslenskra króna. Thomas Vermaelen hefur reyndar ekki spilað ennþá fyrir spænska félagið en hann hefur verið mikið meiddur síðan að hann mætti til Katalóníu. Sú staðreynd hefur ekki nein áhrif á umræddan bónus. Thomas Vermaelen var á bekknum í fyrri leik Barcelona og Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Hann er orðinn leikfær eftir átta mánaða fjarveru vegna meiðsla og gæti komið við sögu á lokakaflanum þar sem Börsungar geta enn unnið þrennuna. Thomas Vermaelen er 29 ára gamall miðvörður sem var hjá Arsenal frá 2009 til 2014. Hann er fastamaður í belgíska landsliðinu. Úrslitaleikur Barcelona og Juventus fer fram 6. júní næstkomandi en liðin munu þá mætast á Ólympíuleikvanginum í Berlín.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira