
Stjórnarandstaðan enn á móti makrílfrumvarpinu
Mörg af stærstu deilumálunum á Alþingi í vetur hafa verið til meðferðar hjá atvinnuveganefnd. Í morgun afgreiddi nefndin breytingar við frumvarp sjávarútvegsráðherra um veiðigjöld og leggur til að þau hækki um rúmlega 12 prósent á næsta fiskveiðiári.
Jón Gunnarsson formaður atvinnuveganefndar sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að veiðigjöldin verði 9,6 milljarðar í stað 8,5 milljarða á yfirstandandi fiskveiðiári. Þá aukist afslættir af gjaldinu til minni útgerða og verði um 300 milljónir króna.
Lilja Rafney Magnúsdóttir fulltrúi Vinstri grænna í atvinnuveganefnd segir hækkun veiðigjaldanna ekki segja alla söguna.
„Í heildina litið eru veiðigjöldin að lækka frá því að frumvarpið var lagt fram. Það eru þarna innbyrðis breytingar milli bolfisksins og uppsjávarfisksins sem felur í sér lækkun veiðigjalda,“ segir Lilja Rafney.
Gerði breytingartillögu í gær
Minnihlutinn telji að auka megi afsláttinn til minni og meðalstórra útgerðanna.
„En aftur á móti að uppsjávarfyrirtækin og stóru útgerðirnar beri hærri veiðigjöld en verið er að leggja til þarna,“ segir Lilja Rafney.
Sjávarútvegsráðherra gerði breytingartillögu á eigin frumvarpi um makrílinn í gær þannig að aflahlutdeild, eða kvóti, í honum verði nú í fyrsta skipti einungis gefinn út til eins árs. En hingað til hefur heildarkvóti fyrir allan flotann verið gefinn út. Stjórnarandstaðan vill fresta málinu alfarið fram á haustþing.
Lilja Rafney segir að með því að setja makrílinn inn í kvótakerfið þótt úthlutun aflaheimilda verði bara til eins árs feli í sér stað mikla grundvallarbreytingu. Með því myndist væntingar um að þannig verði það áfram með tilheyrandi verðmætum og framsali.
„Við skulum nú sjá til og vonandi verður það þannig að ráðherra sjái það að það er skynsamlegt að fresta þessu stóra máli fram á haustið. Það eru nú ekki nema um tíu vikur þangað til þing kemur aftur saman í september,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Tengdar fréttir

Samkomulag um þinglok að fæðast á Alþingi
Forseti Alþingis og varaformaður Framsóknarflokksins hafa í dag fundað stíft með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna um afgreiðslu mála fyrir sumarleyfi þingsins.

Jón Gunnarsson vill sátt um makrílfrumvarpið
Formaður atvinnuveganefndar segir óvíst hvort makrílfrumvarpið verði afgreitt úr nefnd í næstu viku og hvort menn kjósi að afgreiða það í sátt eða ekki.

Engin sátt um makrílfrumvarpið í atvinnuveganefnd
Ólíklegt að stjórn og stjórnarandstaða nái sátt um makrílfrumvarpið. Talsmenn undirskriftasöfnunar segja margt enn óskýrt í breytingatillögum.

Huginn VE fann makríl djúpt suður af Eyjum
Huginn VE búinn að finna makríl djúpt suður af Vestmannaeyjum

Makrílkvóti 23 báta er undir 10 kílóum
Minnihluti þeirra smábáta sem fá úthlutaðar veiðiheimildir á komandi vertíð samkvæmt reglugerð um makrílveiðar 2015 geta stundað veiðar af alvöru.

Saka sjávarútvegsráðherra um klækjapólitík og forkastanleg vinnubrögð
Landssamband smábátaeigenda lýsir yfir fullu vantrausti á embættisfærslu ráðherrans í makrílmálinu og krefst þess að hún verði dregin til baka

Tugir sitja uppi með ónýtta fjárfestingu
Kvótasetning á makrílveiðar smábáta þýðir að meirihluti þeirra sjómanna sem hafa veitt makríl hafa ekkert erindi á sjó og sitja þeir uppi með milljóna fjárfestingu ónýtta.