Handbolti

Arftaki Stanic fundinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stochl ásamt Nikolaj Jacobsen, þjálfara Löwen.
Stochl ásamt Nikolaj Jacobsen, þjálfara Löwen.
Topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, Rhein-Neckar Löwen, varð fyrir nokkru áfalli á dögunum er markvörðurinn Darko Stanic ákvað að yfirgefa félagið.

Stanic ákvað að elta peninga til Katar þar sem hann er að fara að spila með El Jaish Sports Club.

Löwen er búið að finna arftaka hans. Það er hinn þaulreyndi slóvakíski markvörður Richard Stochl.

Hann kemur til félagsins frá úkraínska liðinu Motor Zaporozhye. Hann lék áður með Medwedi í Rússlandi og franska liðinu Montpellier.

Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson leika með Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×