Handbolti

Snorri Steinn skoraði þrjú mörk í tapleik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. vísir/eva björk
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, skoraði þrjú mörk úr sex skotum í 34-27 tapi gegn Dunkerque á útivelli í frönsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt mark úr þremur skotum fyrir Nimes sem var sex mörkum undir í hálfleik, 17-11.

Nimes er með sjö stig í sjötta sæti deildarinnar eftir sjö umferðir, en Dunkerque stökk yfir Nimes með sigrinum í kvöld.

Róbert Gunnarsson var ekki í leikmannahópi PSG sem vann stórsigur á AiX, 35-25, á útivelli.

PSG er sem fyrr á toppi deildarinnar með tólf stig, en liðið er búið að vinna alla sex leiki sína til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×