Handbolti

Aron með eitt mark í 20 marka sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Vísir
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark er lið hans, Veszprem, vann 20 marka sigur á serbneska liðinu Vojvodina í SEHA-deildinni í kvöld, 42-22.

SEHA-deildinni samanstendur af liðum frá alls átta löndum í suðausturhluta Evrópu.

Veszprem er efst í deildinni með fullt hús stiga að loknum fimm leikjum. Meshkov Brest er einnig með VojvodinaReyndar eru alls fimm lið með fimmtán stig en Veszprem er það eina sem hefur spilað aðeins fimm leiki.

Íslendingar voru einnig í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Sävehof vann Ricoh á útivelli, 25-23. Atli Ævar Ingólfsson skoraði þrjú mörk fyrir Sävehof og Tandri Már Konráðsson eitt fyrir Ricoh. Magnús Óli Magnússon komst ekki á blað fyrir síðarnefnda liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×