Handbolti

Guðjón Valur nýtti öll skot nema eitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/AFP
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona héldu sigurgöngu sinni áfram í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Barcelona vann þá 22 marka sigur á BM Puente Genil á útivelli, 38-16, en lið Puente Genil er frá Andalúsíu á Suður-Spáni.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk úr 6 skotum í leiknum þar af komu þrjú marka hans úr hraðaupphlaupum.

Jallouz Wael var markahæstur með 9 mörk en Guðjón Valur skoraði næstmest ásamt Kiril Lazarov sem skoraði 2 af 5 mörkum sínum af vítalínunni.

Barcelona hefur unnið alla átta deildarleiki sína á tímabilinu en hefur þó bara eins stigs forskot því lið Ciudad de Logroni hefur náði í 15 stig af 16 mögulegum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×