Handbolti

Lauflétt fyrir Aron og hans menn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Vísir
Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir ungverska liðið Veszprem sem fór létt með Spartak Vojput frá Serbíu í austur-evrópsku SEHA-deildinni.

Veszprem var að spila sinn þriðja leik í röð á jafn mörgum dögum í deildinni en liðið hefur unnið þá alla örugglega. Veszprem er efst í deildinni með fullt hús stiga eftir sex leiki.

Aron gaf eina stoðsendingu í leiknum en markahæstur í liði VEszprem var Gasper Marguc með níu mörk.

Alls eru tíu lið í deildinni frá átta löndum í austurhluta Evrópu. Spartak Vojput er í sjöunda sætinu með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×