Handbolti

Karen og Arna Sif með 9 mörk saman í sigurleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arna Sif Pálsdóttir.
Arna Sif Pálsdóttir. Vísir/Getty
Landsliðskonurnar Karen Knútsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir voru báðar með góða skotnýtingu þegar Nice vann sex marka sigur á Dijon, 31-25, í frönsku kvennadeildinni í handbolta í kvöld.

Línumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir skoraði 5 mörk úr 6 skotum og Karen Knútsdóttir var með 4 mörk úr 5 skotum. Arna Sif spilaði í 57 mínútur af 60 en Karen var inná vellinum í 34 mínútur.

Arna Sif var næstmarkahæst hjá Nice á eftir Alexöndru Lacrabère sem skoraði 9 mörk úr 11 skotum í leiknum í kvöld.

Nice var einu marki yfir í hálfleik, 13-12, en var mun sterkara í seinni hálfleiknum sem liðið vann 18-13.

Nice var að vinna sinn þriðja heimaleik í röð en það hefur lítið gengið í útileikjum liðsins að undanförnu.

Nice er í fimmta sæti deildarinnar eftir þennan sigur og er á leiðinni inn í úrslitakeppnina haldi þær því sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×