Handbolti

Sarmiento á leið til St. Raphael

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sarmiento í leik með Barcelona.
Sarmiento í leik með Barcelona. vísir/epa
Franska félagið St. Raphael, sem Arnór Atlason leikur með, var að næla sér í sterkan mann frá Barcelona.

Dani Sarmiento er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið og kemur til Frakklands næsta sumar.

Hinn 32 ára Sarmiento er spænskur landsliðsmaður og var valinn besti leikmaður spænsku deildarinnar árið 2009.

Þetta er mikill hvalreki fyrir franska félagið enda er Sarmiento gríðarlega sterkur leikmaður.

St. Raphael er svo væntanlegt til Íslands á næstunni er liðið spilar við Hauka í EHF-bikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×