Handbolti

Rúnar með sjö mörk í jafntefli Hannover Burgdorf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar átti flottan leik í kvöld.
Rúnar átti flottan leik í kvöld. vísir/daníel
Hannover Burgdorf og Lemgo skildu jöfn, 34-34, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Kai Hafner skoraði 10 mörk fyrir Hannover og hann fékk tækifæri til að tryggja liðinu sigurinn á lokasekúndunum en Nils Dresrusse, markvörður Lemgo, varði skot han og tryggði sínum mönnum stig.

Rúnar Kárason átti fínan leik í liði Hannover og skoraði sjö mörk, þar af fjögur úr vítaköstum. Ólafur Guðmundsson komst ekki á blað.

Þetta var annað jafntefli Hannover í síðustu þremur leikjum en liðið er í 11. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 12 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×