Handbolti

Snorri Steinn skoraði jöfnunarmark Nimes

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snorri Steinn á flugi í leik með Nimes.
Snorri Steinn á flugi í leik með Nimes. Vísir/AFP
Snorri Steinn Guðjónsson tryggði Nimes annað stigið er hann skoraði jöfnunarmark liðsins gegn Cesson-Rennes á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Markið kom rúmum tveimur mínútum fyrir leikslok og reyndist það síðasta í leiknum. Snorri Steinn tók alls fjórtán skot í leiknum. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt mark í sex skotum.

Nimes er í sjötta sæti frönsku deidlarinnar með tíu stig en Cesson-Rennes í því fjórða með tólf. PSG, lið Róberts Gunnarssonar, og St. Raphael, sem Arnór Atlason leikur með, eru á toppnum með fjórtán.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×