Handbolti

Átta mörk Vignis ekki nóg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. Vísir/Getty
Mors-Thy hafði í kvöld betur gegn Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni, 33-31. Vignir Svavarsson skoraði átta mörk fyrir síðarnefnda liðið en það dugði ekki til.

Þrír Íslendingar eru á mála hjá Mors-Thy. Guðmundur Árni Ólafsson skoraði þrjú mörk fyrir liði, Agnar Smári Jónsson eitt en Róbert Aron Hostert ekkert.

Mors-Thy náði með sigrinum að jafna Midtjylland að stigum en bæði lið eru nú með tólf stig í 9.-10. sæti. Skjern er efst með átján stig en Bjerringbro/Silkeborg og KIF Kolding Köbenhavn koma næst með sautján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×