Handbolti

Ólafur með sín sex mörk og Kristianstad með fjórtán sigra í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Vísir/Diener/Leena
Ólafur Guðmundsson og félagar í Kristianstad héldu sigurgöngu sinni áfram í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Kristianstad vann þá sex marka heimasigur á Lugi, 34-28, en Kristianstad-liðið hefur unnið fjórtán fyrstu leiki sína í sænsku deildinni.

Ólafur Guðmundsson var næstmarkahæstur hjá Kristianstad með sex mörk úr tólf skotum.

Þetta var þriðji leikur Ólafs síðan að hann snéri aftur til Kristianstad og hann hefur skorað sex mörk í þeim öllum.

Inge Aas Eriksen var markahæstur hjá Kristianstad-liðinu með sjö mörk og þurfti bara átta mörk til að skora þau.

Kristianstad hefur fimm stiga forskot á Alingsås HK á toppi deildarinnar en Íslendingaliðið IK Sävehof er síðan í þriðja sætinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×