Handbolti

Alfreð fær Bilyk strax næsta sumar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nikola Bilyk.
Nikola Bilyk. vísir/afp
Einn efnilegasti handboltamaður heims mun ganga í raðir Þýskalandsmeistara Kiel næsta sumar.

Það er austurríska skyttan Nikola Bilyk en hann er aðeins 19 ára gamall.

Það er nokkuð síðan Kiel náði samkomulagi við leikmanninn en hann átti upphaflega að koma sumarið 2017. Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, hefur skipt um skoðun og ætlar að hann strax næsta sumar.

„Það var ein besta stund lífs míns er mér var tjáð að ég færi næsta sumar. Ég get ekki beðið eftir að klæða mig í treyju félagsins," sagði brosandi Bilyk en hann er að spila með Fivers Margareten í heimalandinu.

Þetta er tæplega tveggja metra strákur og mikil skytta. Verður áhugavert að fylgjast með framförum hans undir stjórn Alfreðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×