Handbolti

Berlínarrefirnir aftur á sigurbraut

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Bjarki Már.
Bjarki Már. Vísir/Getty
Bjarki Már Elísson og félagar í Füsche Berlin unnu sannfærandi fimm marka siugr á Balingen-Weilstetten í 16. umferð þýsku deildarinnar í handbolta.

Berlínarrefirnir leiddu strax frá fyrstu mínútu og komust 6-1 yfir á upphafsmínútum leiksins og leiddu 16-12 í hálfleik.

Leikmönnum Balingen tókst ekki að ógna forskoti Füsche í seinni hálfleik en munurinn fór aldrei undir þrjú mörk og fögnuðu Berlínarrefirnir sigri, þeim fjórða í síðustu fimm leikjum.

Bjarki Már var öflugur í leiknum en hann skoraði alls sex mörk, þar af fjögur þeirra af vítalínunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×