Handbolti

Lærisveinar Geirs unnu nauman sigur á Eisenach

Lærisveinar Geirs misstu næstum því niður unnin leik gegn Eisenach í dag.
Lærisveinar Geirs misstu næstum því niður unnin leik gegn Eisenach í dag. Vísir/getty
Lærisveinar Geirs Sveinssonar í Magdeburg sluppu með þriggja marka sigur á Eisenach í 16. umferð þýsku deildarinnar í handbolta í dag.

Lærisveinar Geirs hófu leikinn af miklum krafti og leiddu í hálfleik 17-8.

Hafa eflaust einhverjir leikmenn liðsins haldið að sigurinn væri í höfn en Eisenach tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk en lengra komust þeir ekki og fögnuðu leikmenn Magdeburg því naumum sigri 27-24.

Ólafur Bjarki Ragnarsson sem gekk til liðs við Eisenach í vor komst á blað í leiknum með eitt mark en Magdeburg er í 8. sæti þýsku deildarinnar með 18 stig að 16 leikjum loknum á meðan Eisenach situr áfram í 17. sæti með aðeins fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×