Handbolti

Rúnar með þrjú í sigri Hannover Burgdorf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar og félagar unnu góðan sigur.
Rúnar og félagar unnu góðan sigur. vísir/daníel
Rúnar Kárason og félagar hans í Hannover Burgdorf unnu eins marks sigur, 29-28, á TuS N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Rúnar skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum í leiknum en Kai Hafner var markahæstur í liði Hannover með átta mörk.

Hannover er í 11. sæti deildarinnar með 16 stig eftir 16 leiki.

Í B-deildinni lagði Íslendingaliðið Emsdetten Wilhelmshavener að velli, 29-26.

Ernir Hrafn Arnarson skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten í kvöld og Anton Rúnarsson þrjú. Oddur Gretarsson, sem var markahæsti leikmaður deildarinnar fyrir leiki kvöldsins, hafði hægt um sig og skoraði aðeins eitt mark.

Það gekk ekki jafn vel hjá Aue en lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar töpuðu með átta marka mun, 34-26, fyrir Minden á útivelli.

Þjálfarasonurinn Sigtryggur Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Aue og föðurbróðir hans, Árni Þór Sigtryggsson, eitt. Sveinbjörn Pétursson varði níu skot í markinu en Bjarki Már Gunnarsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×