Körfubolti

NBA: Kyrie Irving spilaði á ný í sigri Cleveland Cavaliers | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kyrie Irving á ferðinni í leiknum.
Kyrie Irving á ferðinni í leiknum. Vísir/Getty
Kyrie Irving lék sinn fyrsta leik með Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni á tímabilinu þegar liðið vann öruggan sigur á Philadelphia 76ers í nótt. Miami Heat vann Portland, Minnesota vann í Brooklyn og það dugði New Orleans Pelicans að Anthony Davis spilaði bara fyrsta og síðasta leikhlutann.

Lið Cleveland Cavaliers er loksins að verða fullskipað eftir að Kyrie Irving snéri aftur í 108-86 heimasigri á Philadelphia 76ers en þetta var fyrsti leikur leikstjórnandans síðan að hnéskel hans brotnaði í fyrsta leik lokaúrslitanna á móti Golden State Warriors.

Kyrie Irving skoraði 12 stig á 17 mínútum í leiknum en LeBron James var stighæstur hjá Cleveland Cavaliers með 23 stig þrátt fyrir spila bara 26 mínútur og ekkert í lokaleikhlutanum. Matthew Dellavedova skoraði fjóra þrista og endaði með 20 stig. Cleveland-liðið hefur unnið 12 af 13 heimaleikjum sínum á tímabilinu og fá næst New York í heimsókn á Þorláksmessu.

Chris Bosh skoraði 29 stig og miðherjinn Hassan Whiteside var með 22 stig og 10 fráköst þegar Miami Heat vann 116-109 heimasigur á Portland Trail Blazers. Dwyane Wade var með 18 stig og 7 stoðsendingar en Miami var um tíma tólf stigum undir í leiknum. Goran Dragic, leikstjórnanda Miami-liðsins, var rekinn út úr húsi í þriðja leikhlutanum. Damian Lillard var með 32 stig og 9 stoðsendingar fyrir Portland.

Nýliðinn Karl-Anthony Towns var með 24 stig og 10 fráköst þegar Minnesota Timberwolves vann 100-85 útisigur á Brooklyn Nets. Gorgui Dieng kom inn með 20 stig og 10 fráköst af bekknum, Andrew Wiggins skoraði 16 stig og Ricky Rubio gaf 15 stoðsendingar. Brook Lopez var atkvæðamestur hjá Brooklyn með 20 stig, 12 fráköst og 5 stoðsendingar.

Anthony Davis þurfti að yfirgefa leikinn í fyrsta leikhluta vegna veiknda en snéri aftur í fjórða leikhlutanum og endaði með 27 stig þegar New Orleans Pelicans liðið vann 130-125 útisigur á Denver Nuggets. Davis var með 19 af stigum sínum í fyrsta leikhlutanum. Tyreke Evans og Jrue Holiday skoruðu báðir 21 stig fyrir New Orleans en Will Barton var með 32 stig og 10 fráköst hjá Denver.

Kyle Korver skoraði 13 af 19 stigum sínum í fjórða leikhlutanum þegar Atlanta Hawks vann 103-100 útisigur á Orlando Magic en Korver skoraði fjóra þrista í lokaleikhlutanum. Þetta var þriðji sigur Atlanta-liðsins í röð.

Rajon Rondo var með 19 stig og 13 stoðsendingar og Rudy Gay skoraði 19 stig á móti sínum gamla félagi þegar Sacramento Kings vann 104-94 útisigur á Toronto Raptors. Kyle Lowry, leikstjórnandi Toronto, var rekinn út úr húsi í leiknum en

DeMar DeRozan var stigahæstur hjá liðinu með 28 stig.



Öll úrslit úr NBA-deildinni í nótt:

Orlando Magic - Atlanta Hawks    100-103    

Toronto Raptors - Sacramento Kings    94-104    

Phoenix Suns - Milwaukee Bucks    95-101    

Cleveland Cavaliers - Philadelphia 76ers    108-86    

Brooklyn Nets - Minnesota Timberwolves    85-100    

Miami Heat - Portland Trail Blazers    116-109    

Denver Nuggets - New Orleans Pelicans 125-130

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×