Íslenska handboltalandsliðið er á leiðinni á HM í Katar en fyrsti leikurinn á heimsmeistaramótinu er eftir aðeins ellefu daga. Í kvöld spilar liðið seinni æfingaleikinn á móti Þýskalandi sem er jafnframt síðasti heimaleikur liðsins fyrir Katarförina.
Íslenska liðið tapaði með sjö marka mun á móti Þjóðverjum í fyrri leik þjóðanna í gær, 24-31, eftir að hafa komist í 5-1 í byrjun leiks. Þýska liðið hafði mikla yfirburði í seinni hálfleiknum og íslenska liðið á mikið verk fyrir höndum á næstu dögum ætli liðið að koma sér í rétta HM-gírinn.
Strákarnir okkar hafa haldið í þá hefð undanfarin átta ár að kveðja alltaf íslensku þjóðina með sigurleik. Sú hefur verið raunin í sjö síðustu skipti þar sem íslenska handboltalandsliðið hefur spilað heimaleik í lokaundirbúningi sínum fyrir HM, ÓL eða EM. Það reynir á þessa hefð í seinni leiknum við Þýskaland í kvöld.
Íslenska landsliðið spilaði ekki heimaleik fyrir EM í Danmörku á síðasta ári en vann síðasta heimaleikinn fyrir öll stórmót sín frá 2007 til 2013.
Það þarf að fara allar götur til ársbyrjunar 2006 til að finna tapleik í síðasta heimaleik liðsins fyrir stórmót. Íslenska liðið tapaði þá tveimur síðustu heimaleikjum sínum fyrir EM í Sviss. Mótherjarnir voru reyndar ekki af verri endanum því þar fóru verðandi Evrópumeistarar Frakka sem unnu nokkrum vikum síðar undan- og úrslitaleikinn á EM með samtals fjórtán mörkum.
Frá aldamótum hefur íslenska liðið aðeins tvisvar kvatt þjóðina með tapi en tíu sinnum hefur síðasti heimaleikurinn unnist. Hér til hliðar má sjá síðustu heimaleiki liðsins fyrir undanfarin stórmót.
Síðustu heimaleikir íslenska handboltalandsliðsins fyrir stórmót:
Hér er átt við síðasta heimaleik íslenska landsliðsins í lokaundirbúningi liðsins fyrir stórmót.
Þýskaland lagði Ísland 31-24 í vináttulandsleik þjóðanna í Laugardalshöll í kvöld. Bæði lið undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið í Katar sem hefst 15. janúar.
"Við gerum allt of mikið af tæknifeilum og náum ekki að brjóta þeirra vörn upp. Þess vegna töpum við þessum leik,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson fyrirliði Íslands eftir tapið gegn Þýskalandi í dag.
"Ég held að frá og með miðjum fyrri hálfleik var þetta orðið ágætlega gott í vörninni,“ sagði Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Þýskalands eftir sigurinn á Íslandi í dag.
"Það var fínn dampur í þessu. Við skoruðum bara ekki úr skotunum. Þeir duttu niður í 6/0, mjög aftarlega og það kom ekki mikið út úr okkur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson leikstjórnandi Íslands eftir tapið gegn Þýskalandi í dag.
"Þetta fór vel af stað og fyrri hálfleikurinn var mjög góður að flestu leyti. Svo dettur botninn úr þessu,“ sagði Björgvin Páll Gústafsson markvörður Íslands eftir tapið gegn Þýskalandi í dag.
"Fyrst of fremst er það sóknarleikurinn sem bregst í dag. Við gerum of mikið af feilum,“ sagði Aron Kristjánsson þjálfari Íslands eftir tapið gegn Þýskalandi í dag.