Tveir gíslar létu lífið Guðsteinn Bjarnson skrifar 24. apríl 2015 07:00 Barack Obama segir misheppnaða árás hafa orðið tveimur gíslum að bana. Vísir/EPA
Bandaríkin hafa beðist afsökunar á því að tveir gíslar létu lífið þegar árás var gerð á liðsmenn Al Kaída-samtakanna við landamæri Afganistans og Pakistans í janúar síðastliðnum. Gíslarnir höfðu báðir verið í haldi Al Kaída í meira en tvö ár. Annar þeirra var ítalskur og hét Giovanni Lo Porto, en hinn var bandarískur og hét Warren Weinstein. Ætlunin hafði verið að bjarga gíslunum. Barack Obama Bandaríkjaforseti lýsti í gær yfir mikilli eftirsjá vegna þessa, en stærði sig jafnframt af því að bandarísk stjórnvöld hefðu brugðist við með því að greina opinskátt frá því sem gerðist. Fullvíst þykir að árásin hafi verið gerð úr dróna, mannlausu flygildi eins og þeim sem Bandaríkin hafa notað í stórum stíl undanfarin ár til árása á hryðjuverkamenn í Pakistan og víðar. Talið er að slíkar árásir hafi orðið þúsundum manna að bana, þar á meðal saklausu fólki. Bandarísk stjórnvöld skýrðu frá því í gær að tveir aðrir bandarískir ríkisborgarar hafi einnig látist í árásinni í janúar. Þeir hafi hins vegar báðir verið liðsmenn Al Kaída.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira