Þetta kemur fram í Áramótum, tímariti Viðskiptablaðsins, en þar birtir ritið áætlun laun 20 launahæstu íslensku íþróttamannanna. Engin kona er á listanum.
Sautján fótboltamenn eru á listanum, tveir handboltamenn (Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson) og einn körfuboltamaður (Jón Arnór Stefánsson).

Það er greinilega góðan pening að fá í Kína en þrír íslenskir landsliðsmenn í fótbolta sem sömdu við kínversk lið á síðasta ári raða sér í fjórða til sjötta sæti listans.
Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Jiangsu Sainty, tekur inn mest af þeim eða 130 milljónir króna og fær meira en Eiður Smári hjá Shijiazhuang sem fékk 110 milljónir króna fyrir sín störf. Hann er nú án félags.
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er efsti maður listans sem ekki spilar fótbolta en hann er talinn fá 48 milljónir króna í árslaun hjá Barcelona, sex milljónum meira en Aron Pálmarsson hjá Veszprém. Jón Arnór Stefánsson fær svo 32 milljónir ár ári í spænska körfuboltanum.