Tony Parker gæti misst af ÓL vegna óléttu konunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2016 22:30 Tony Parker fékk brons á síðasta Evrópumótinu. Vísir/Getty
Tony Parker, leikstjórnandi NBA-liðsins San Antonio Spurs og franska landsliðsins í körfubolta, missir hugsanlega af Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu í haust. Ástæðan er að eiginkona hans á von á barni í lok júlímánaðar og Parker hefur ekki enn ákveðið hvað hann muni gera. Tony Parker talaði um klípu sína í viðtali við frönsku útvarpsstöðina RMC. Franska landsliðið tekur þátt í undankeppni ÓL 4. til 10. júlí og takist þeim að tryggja sér farseðilinn á leikana mun franska liðið keppa í Ríó frá 6. til 21. ágúst. Eiginkona Tony Parker, franski blaðamaðurinn Axelle Francine, er sett í endaðan júlí en þetta er þeirra annað barn. Axelle fæddi soninn Josh Parker í apríl 2014. „Þetta eru stórar fréttir. Ég mun þurfa að tala við franska landsliðið og ég þarf líka að semja við konuna. Það gæti orðið afar, afar erfitt að ná endum saman," sagði Parker í útvarpsviðtalinu en ESPN segir frá. Jean-Pierre Siutat, forseti franska körfuboltasambandsins frétti fyrst af stöðu Parker þegar hann heyrði hann segja frá óléttu konunnar í útvarpsviðtalinu. Tony Parker var með franska landsliðinu á Ólympíuleikunum í London þar sem liðið endaði í sjötta sæti. Hann var með 15,7 stig og 3,2 stoðsendingar að meðaltali. Tony Parker hefur unnið fern verðlaun með franska landsliðinu á stórmótum. gull á EM 2013, silfur á EM 2011 og brons á EM 2005 og EM 2015.
Körfubolti NBA Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira