Handbolti

Nú vann Löwen á löglegan hátt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Rhein-Neckar Löwen er loks komið áfram í svokallaða Final Four keppni í þýska bikarnum eftir sigur á Melsungen í kvöld, 26-23.

Þessi lið mættust fyrst þann 16. desember og þá vann Löwen afar umdeildan sigur á marki úr vítakasti sem var dæmt á lokasekúndum leiksins.

Sjá einnig: Sjáðu hvernig Löwen komst á ótrúlegan hátt í undanúrslit bikarsins

Melsungen kærði niðurstöðu leiksins og vann málið. Þremur dögum eftir að leikurinn fór fram var ákveðið að hann skyldi endurtekinn, sem var svo gert í kvöld.

Eftir jafnan fyrri hálfleik var Löwen með góð tök á leiknum í þeim síðari og vann að lokum þriggja marka sigur. Hvorki Alexander Petersson né Stefán Rafn Sigurmannsson voru á meðal markaskorara Löwen í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×