Handbolti

Þægilegt hjá Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Kiel vann Besiktas, 32-27, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar voru með undirtökin allan leikinn og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 17-14.

Marko Vujin skoraði sex mörk fyrir Kiel og Eistlendingurinn Dener Jaanimaa fimm. Markahæstur hjá tyrkneska liðinu var Darko Djukic sem skoraði níu mörk.

Kiel er í fjórða sæti A-riðils með fimmtán stig en liðið á ekki möguleika á að liðunum þremur fyrir ofan að stigum úr þessu. Flensburg og PSG eru efst með 20 stig og Veszprem er með nítján.

Aron Pálmarsson leikur með Veszprem sem mætir Flensburg í Þýskalandi um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×