Handbolti

Langþráður sigur Vignis og félaga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir og félagar höfðu ástæðu til að fagna í dag.
Vignir og félagar höfðu ástæðu til að fagna í dag. mynd/facebook-síða midtjylland
Vignir Svavarsson og félagar hans í Midtjylland unnu stórsigur, 32-20, á Nordsjælland í dönsku 1. deildinni í handbolta í dag.

Þetta var mikilvægur sigur hjá Midtjylland en liðið var búið að tapa átta af síðustu níu leikjum sínum. Vignir og félagar eru í 12. sæti deildarinnar með 15 stig.

Vignir skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir Midtjylland en liðið hafði mikla yfirburði í leiknum og náði mest 14 marka forystu, 32-18.

Vignir og félagar urðu bikarmeistarar í síðasta mánuði eftir 30-26 sigur á GOG í úrslitaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×