Barcelona henti frá sér tveggja marka forystu Anton Ingi Leifsson skrifar 20. mars 2016 16:45 Úr leiknum í dag. vísir/getty
Barcelona glutraði niður tveggja marka forskoti gegn Villareal í dag í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en lokatölur urðu 2-2. Fyrir leikinn var Barcelona búið að vinna síðustu níu leiki í öllum keppnum, en Villareal náði að stöðva sigurgönguna í dag. Ivan Rakitic kom Barcelona yfir á 21. mínútu og Neymar tvöfaldaði forystuna af vítapunktinum tuttugu mínútum síðar og staðan 2-0 í hálfleik. Flestir héldu að eftirleikurinn yrði auðveldur en svo var ekki. Cedric Bakambu minnkaði muninn á 58. mínútu fyrir Villareal og fimm mínútum síðar jöfnuðu heimamenn. Jeremy Mathieu setti þá boltann í eigið mark, en hvorugu liðinu tókst að skora sigurmarkið og lokatölur 2-2. Mikil harka var í leiknum, en ellefu gul spjöld fóru á loft. Barcelona er enn á toppnum með 76 stig, með níu stiga forskot á Atletico Madrid sem er í öðru sæti, en Villareal er í fjórða sætinu með 54 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Fótbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira