Körfubolti

Veðbankar segja meiri líkur á að Cleveland verði NBA-meistari en San Antonio

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Golden State Warriors vann NBA-titilinn í júní síðastliðnum.
Golden State Warriors vann NBA-titilinn í júní síðastliðnum. Vísir/Getty
Golden State Warriors er sigurstranglegasta liðið í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í ár og það kemur auðvitað engum á óvart. Golden State er NBA-meistari síðan síðasta sumar og vann 73 af 82 leikjum sínum í deildarkeppninni sem er nýtt NBA-met.

Westgate SuperBook veðbankinn hefur tekið saman sigurlíkurnar hjá þeim sextán liðum sem komust í úrslitakeppnina sem hefst á morgun.

Samkvæmt þeim lista ættu Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors að mæta LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers í lokaúrslitunum annað árið í röð.

Það vekur athygli að það eru meiri líkur að Cleveland Cavaliers verði NBA-meistari en San Antonio Spurs sem vann meðal annars 40 af 41 heimaleik sínum í deildarkeppninni. Aðalástæðna er væntanlega að Spurs þarf að komast í gegnum Golden State ætli liðið sér í lokaúrslitin í ár.

Þrjú af fjórum sigurstranglegustu liðunum koma samt úr Vesturdeildinni en Oklahoma City Thunder er í fjórða sæti listans á undan Toronto Raptors.

Það er aftur á móti minnstu líkurnar á því að Memphis Grizzlies verði NBA-meistari í ár en liðið endaði tímabilið skelfilega eftir að hafa misst marga af lykilmönnum sínum í meiðsli.

Úrslitakeppni NBA-deildarinnar hefst síðan strax á laugardaginn en fyrsti leikurinn verður á milli Toronto Raptors og Indiana Pacers. Strax á eftir spila síðan Golden State Warriors og Houston Rockets en hinir leikir fyrsta dagsins eru á milli Atlanta Hawks og Boston Celtics annarsvegar og Oklahoma City Thunder og Dallas Mavericks hinsvegar. Allar hinar viðureignirnar fara síðan í gang á sunnudaginn.



Líkur á NBA-meistaratitli í ár:

Golden State Warriors    5/7

Cleveland Cavaliers    3/1

San Antonio Spurs    7/2

Oklahoma City Thunder    16/1

Toronto Raptors    25/1

Los Angeles Clippers    30/1

Miami Heat    40/1

Boston Celtics    50/1

Atlanta Hawks    60/1

Indiana Pacers    100/1

Charlotte Hornets    100/1

Portland Trail Blazers    200/1

Detroit Pistons    200/1

Houston Rockets    300/1

Dallas Mavericks    300/1

Memphis Grizzlies    1,000/1



- Úrslitakeppni NBA 2016 -

Átta liða úrslit Austurdeildarinnar:

(1) Cleveland Cavaliers - (8) Detroit Pistons

(2) Toronto Raptors - (7) Indiana Pacers

(3) Miami Heat - (6) Charlotte Hornets

(4) Atlanta Hawks - (5) Boston Celtics

Átta liða úrslit Vesturdeildarinnar:

(1) Golden State Warriors - (8) Houston Rockets

(2) San Antonio Spurs - (7) Memphis Grizzlies

(3) Oklahoma City Thunder - (6) Dallas Mavericks

(4) Los Angeles Clippers - (5) Portland Trail Blazers

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×