Körfubolti

Auglýsingar á leið á NBA-búningana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe með KIA-auglýsinguna í Stjörnuleiknum. Á sama stað verða væntanlega auglýsingar á öðrum NBA-búningum næsta vetur.
Kobe með KIA-auglýsinguna í Stjörnuleiknum. Á sama stað verða væntanlega auglýsingar á öðrum NBA-búningum næsta vetur. vísir/getty
Eigendur félaga í NBA-deildinni munu líklega samþykkja í vikunni að leyfa auglýsingar á búningum liða deildarinnar.

Þetta eru mikil tíðindi enda hafa auglýsingar aldrei verið leyfðar á búningunum. Þetta mál hefur þó verið í umræðunni síðustu ár.

NBA steig skref í þessa átt í vetur er þeir settu eina auglýsingu á búningana í Stjörnuleiknum.

Hér er samt ekki verið að tala um stórar auglýsingar á maga leikmanna heldur verður þetta lítil auglýsing á vinstri öxl búninganna. Eitt skref í einu.

Atkvæðagreiðsla um málið fer fram síðar í vikunni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×