Einn látinn eftir hnífaárás í bæ nálægt München Gunnar Reynir Valþórsson og Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifa 10. maí 2016 07:44 Lögregla kom á staðinn. Vísir/EPA
Einn er látinn og þrír eru alvarlega slasaðir eftir að hafa verið stungnir af manni á lestarstöð í bænum Grafing nálægt þýsku borginni München nú í morgun. RTE greinir frá. Vitni herma að árásarmaðurinn hafi hrópað nafnið Allahu Akbar, eða Guð hinn stórfenglegi, áður en hann lét til skarar skríða. Lögregla rannsakar nú vettvang og hefur tekið vitni til yfirheyslu. Einn hinna særðu er sagður í lífshættu. Árásarmaðurinn var handsamaður af lögreglu í nágrenninu. Samkvæmt fjölmiðlum á meginlandinu er maðurinn ungur og hefur ekki áður komist í kast við lögin. Í samtali við Bild sagði vitni að lögregla hefði þurft að beita manninn hörku þegar hann streittist á móti handtöku. Angelika Obermayr, bæjarstjóri Grafing, sagði samkvæmt BBC að maðurinn væri þýskur ríkisborgari. Sá látni er karlmaður. Gera má ráð fyrir töfum á lestarstöðinni í dag vegna rannsóknar á málinu. #BREAKING: Commuter killed, others stabbed at #Munich train station terror attack: Terrorist shouted Allahu Akbar pic.twitter.com/kd4pJasv6p— Amichai Stein (@AmichaiStein1) May 10, 2016 #Update - German police say 4 people have been stabbed at a station in #Grafing near #Munich, attacker is detained. pic.twitter.com/N81qNGO6LR— WTOC Walter Ambrose (@ambrose03) May 10, 2016
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Fleiri fréttir Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Sjá meira