Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Smári Jökull Jónsson skrifar 29. október 2026 16:10 Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, og Andreas Norlén þingforseti. Vísir/EPA Tillaga um Elisabeth Thand Ringqvist, formann Miðflokksins, sem forsætisráðherra Svíþjóðar verður lögð fram í sænska þinginu á þriðjudag. Allar líkur eru á að henni verði hafnað og sjálf virðist hún ekki hafa mikinn áhuga á því að hljóta kosningu í embættið.
Þingforsetinn Andreas Norlén tilkynnti um ákvörðun sína fyrr í dag. Atkvæðagreiðslan mun fara fram á þriðjudag en ákvörðun Norlén kom sérfræðingum á óvart þar sem nokkuð ljóst er að ekki liggur fyrir stuðningur meirihluta þingmanna við ríkisstjórn undir stjórn Ringqvist. „Hugtökin að kanna og kjósa svo snúast um, að í fyrsta lagi halda uppi ákveðnu tempói og smám saman auka þrýstinginn á flokkana að finna lausn á stöðunni þar sem mögulegar nýjar kosningar nálgast, og í öðru lagi að ljúka þessum hluta ferlisins til að geta haldið áfram í þann næsta,“ sagði Norlén á blaðamannafundi í dag. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Atkvæðagreiðslan á þriðjudag verður önnur tilraunin til að kjósa forsætisráðherra en Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmannaflokksins, var felld í kosningu fyrr í mánuðinum. Alls getur þingforseti lagt fram fjórar tillögur um forsætisráðherra en verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga. Hefur lítinn áhuga á að verða forsætisráðherra Eins og áður segir er fastlega búist við því að tillaga um Ringqvist sem forsætisráðherra verði felld. Sjálf sagði Ringqvist í dag að þó að hún hafi samþykkt að kosið yrði um hana sem forsætisráðherra hafi hún bent þingforsetanum Norlén á að það væru aðrir möguleikar í stöðunni. „Miðflokkurinn mun áfram sýna ábyrgð og leggja sitt af mörkum svo hægt verði að mynda ríkisstjórn. Þess vegna hef ég samþykkt að kosið verði um mig sem forsætisráðherra miðjustjórnar sem Miðflokkurinn, Jafnaðarmenn, Kristilegir demókratar, Græningjar og Frjálslyndir myndu mynda,“ sagði Ringqvist við sænska ríkismiðilinn SVT. Niðurstöður þingkosningaþegar 100% atkvæða hafa verið talin Í kjölfar kosninganna hefur Ringqvist talað fyrir myndun miðjustjórnar undir stjórn Magdalenu Andersson formanns Jafnaðarmannaflokksins, en hugmyndir hennar hlotið lítinn hljómgrunn. Formenn Kristilegra demókrata og Frjálslyndra hafa til að mynda sagt skýrt að þeir hafi engan áhuga á að hjálpa vinstri flokkunum að komast til valda. Myndun miðjustjórn ar hefði þýtt að hægri og vinstri blokkarnir svokölluðu myndu splundrast. Sýnir hver ræður Fulltrúar annarra flokka hafa tjáð sig um ákvörðun Norlén í dag og má greina nokkura gremju hjá forystumönnum vinstriflokkanna vegna hennar. Magdalena Andersson sagði það athyglisvert að Norlén vilji setja af stað kosningu um aðila sem hafi reynt að mynda stjórn án þess að ætla sjálf að verða forsætisráðherra og þar að auki með ríkisstjórn í huga sem ljóst væri að sumir flokkanna vildu ekki vera hluti af. Pólitískur sérfræðingur SVT, Erik Nilsson, segir að með ákvörðun sinni í dag hafi þingforsetinn Norlén sýnt hver það er sem ræður. „Hann hefur hingað til passað sig á að taka ekki of umdeildar ákvarðanir og reynt að halda fulltrúum flokkanna góðum. Nú hefur hann hins vegar reitt forystumenn flokkanna í vinstri blokkinni til reiði,“ sagði Nilsson. „Formaður Miðflokksins hefur sagt að hún sjálf vilji sjá aðra lausn á málunum. Talsmaður Græningja kallar ákvörðunina athyglisverða og formaður Jafnaðarmanna hefur talað á sömu nótum.“ Kristersson fær umboðið næst Verði tillagan um Ringqvist sem forsætisráðherra felld á þriðjudag mun Ulf Kristersson, formaður Moderaterna og starfandi forsætisráðherra, fá stjórnarmyndunarumboðið en þetta tilkynnti Norlén á blaðamannafundinum í dag. Kristersson mun þá væntanlega kanna möguleika á áframhaldandi samstarfi hægri flokkanna sem mynduðu stjórn á síðasta kjörtímabili. Sú stjórn missti meirihluta sinn á þingi í kosningunum þann 12. september og þarf því að treysta á aðkomu Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur hins vegar gefið skýrt út að hann muni ekki sitja í ríkisstjórn með fjarhægriflokki Svíþjóðardemókrata. Svíþjóðardemókratar eru þriðji stærsti flokkurinn á þingi og gerði kröfu um ráðherrastóla fyrir kosningar, yrði hann hluti af meirihlutasamtarfi, en ýmsir hátt settir innan flokksins hafa þó að undanförnu opnað á möguleikann á að koma að meirihlutasamstarfi án þess að eiga sæti við ríkisstjórnarborðið. Hvort það dugi til að lokka Miðflokkinn yfir í hægri blokkanna á eftir að koma í ljós en pólitískir sérfræðingar telja það þó afar ólíklegt og að verkefni Kristersson sé nánast óvinnandi.
Þingkosningar í Svíþjóð Svíþjóð Tengdar fréttir Andersson hafnað í sænska þinginu Tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra Svíþjóðar var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu nú rétt áðan. Niðurstaðan kemur lítið á óvart en borin var fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins væri skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins. 15. október 2026 10:52 Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. 29. september 2026 22:43 Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira
Andersson hafnað í sænska þinginu Tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra Svíþjóðar var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu nú rétt áðan. Niðurstaðan kemur lítið á óvart en borin var fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins væri skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins. 15. október 2026 10:52
Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. 29. september 2026 22:43