„Auðvitað hafði Ólafur að einhverju leyti farið í þessa átt, sér í lagi í kosningabaráttunni 2012, en ég held að hann hafi nú aldrei gengið svo langt eins og Davíð gekk í framgöngu sinni gegn Guðna í Eyjunni,“ sagði Eiríkur sem ræddi kosningabaráttuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun ásamt Stefaníu Óskarsdóttur dósent í stjórnmálafræði.
Eiríkur sagði ekkert óeðlilegt við það að rifja upp það sem Guðni hafi sagt en það væri hins vegar eftirtektarvert að þegar frambjóðandinn væri búinn að svara fyrir sig þá væri stöðugt haldið áfram. Áhorfendum væri þá ekki leyft almennilega að draga sínar eigin ályktanir. Það væri þó jafnframt þannig að forsetaframbjóðandi sem ætlar sér að verða forseti verður að geta tekist á við aðstæður eins og upp komu í Eyjunni og svara fyrir sig.
Skorti hlýleika sem fólk leiti eftir
Stefanía sagði að það hefði verið algjörlega verið fyrirsjáanlegt að Guðni þyrfti að svara fyrir afstöðu sína til Icesave og ESB. Þá hafi ekki komið á óvart að þorskastríðin hafi blandast inn í þetta.
„Það hefur sýnt sig í sálfræðinni að það sem skiptir mestu máli þegar verið að ráða fólk til starfa þá er það mat á hæfni og svo mannlegur hlýleiki sem fólk leitar eftir. [...] Það má segja að í Eyjunni hafi Davíð Oddsson verið að reyna að sýna fram á hæfni sína og draga í efa hæfni Guðna en hann skorti kannski eitthvað upp á þetta milda og mjúka og þennan hlýleika sem fólk er að leita eftir,“ sagði Stefanía og bætti við að Guðni hefði hins vegar skorað hátt í því.
Umræður í sjónvarpi hafi áhrif
„Fólki finnst eins og þar sé kominn venjulegur íslenskur heimilisfaðir sem er svona betri útgáfan af okkur sjálfum og ég er viss um að margir hafi fundið til með honum að hafa lent í hakkavélinni og telja honum það til tekna. En eins og Eiríkur segir þá þarf forsetaframbjóðandi ekki bara að sýna að hann er mjúkur og hlýr heldur þarf hann líka að sýna að hann er hæfur,“ sagð Stefanía.
Eiríkur sagði að svona umræður í sjónvarpi hefðu áhrif.
„Ekki að ég ætli að leggja það að jöfnu en þið sjáið framgöngu Donald Trump í Bandaríkjunum. Þegar hann gengur fram þannig að það leikur eiginlega allt á reiðiskjálfi þá fara hlutirnir af stað og fylgið fer svolítið af stað. Þessi könnun í Fréttablaðinu í morgun ber þess merki þar sem Guðni lækkar og færri gefa upp afstöðu sína. Þá minnkar Davíð líka og kannski er það það sem gerist í svona þegar atlagan verður jafnharkaleg og var hjá Davíð í Eyjunni þá minnki það fylgi þeirra beggja en hinir eiga þá meiri möguleika á að komast inn í spilið. Ávinningurinn í þessari könnun fellur Höllu megin sýnist mér.“
Hlusta má á spjall Eiríks og Stefaníu í heild sinni í spilaranum hér að neðan.