Körfubolti

LeBron James reynir að kveikja í liðsfélögum sínum með gjöfum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það hefur lítið gengið upp hjá LeBron James og félögum í fyrstu tveimur leikjunum á móti Golden State.
Það hefur lítið gengið upp hjá LeBron James og félögum í fyrstu tveimur leikjunum á móti Golden State. Vísir/Getty
LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers eru komnir niður í holu í úrslitum NBA-deildarinnar eftir tvö stór töp í fyrstu leikjunum á móti Golden State Warriors.

Fáir körfuboltaspekingar í Bandaríkjunum haga trú á Cleveland-liðinu og einhverjir eru jafnvel sannfærðir um að Cleveland-liðið eigi bara ekki möguleika í Golden State Warriors og verði sópað í sumarfrí.

LeBron James reyndi að kveikja í liðsfélögunum með veglegri gjöf fyrir leik tvö en liðið steinlá samt með 33 stigum. Þetta var önnur gjöf kappans til liðfélaga sinna í þessari úrslitakeppni. Hann hefur svo sem efni á því að gefa mönnum veglegar gjafir enda peningar ekkert vandamál á því heimili.

Allir leikmenn Cleveland Cavaliers höfðu fengið mjög sérstaka gjöf frá LeBron James áður en úrslitakeppnin hófst en fyrir leik tvö þá færði hann þeim einnig tísku-heyrnartól frá Beats.

Leikmenn fengu brynju í fullri stærð áður en úrslitakeppnin byrjaði og það var ekki hægt að kvarta yfir áhrifum hennar á liðið sem vann fyrstu tíu leiki úrslitakeppninnar.

LeBron James er mjög umhugað um skilaboðin sem fylgja gjöfunum og þær eru líka persónulegar.

Brynjurnar sem hann gaf hverjum og einum leikmanni fyrir úrslitakeppnina voru til dæmis merktar viðkomandi leikmanni en þær voru í fullri stærð og mjög vandaðar. Með brynjunni fylgdu jafnframt skilaboð um vernd og samheldni.

Gjöfin fyrir leik tvö voru gyllt „Beats By Dre“ heyrnartól en það var ekki það eina því með þeim fylgdu persónuleg skilaboð frá LeBron James sem áttu að kveikja í hans mönnum.

Liðfélagar LeBron James hafa verið að segja fjölmiðlamönnum frá gjöfum leiðtoga síns en ekki er vitað hvort að þetta hafi átt að vera eitthvað leyndarmál. Gjafirnar eru hinsvegar mjög sérstakar og sértækar.

Þriðji leikur Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers fer fram á heimavelli Cleveland í kvöld og verður sýndir beint á Stöð 2 Sport 3. Útsendingin hefst klukkan eitt eftir miðnætti.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×