Íslenska liðið varð fyrir miklu áfalli að fá á sig mark strax í byrjun í þessum stærsta leik íslenska liðsins í sögunni en strákarnir okkar komu sterkir til baka.
Miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson skoraði jöfnunarmarkið eftir stoðsendingu frá hinum miðverði íslenska liðsins, Kára Árnasyni.
Þetta er annar leikurinn í röð sem Kári Árnason leggur upp mark hjá íslenska liðinu en hann lagði upp mark fyrir Jón Daða Böðvarsson í sigurleiknum á móti Austurríki.
Bæði mörkin eiga það sameiginlegt að hafa komið eftir löng innköst frá fyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni.
Hér fyrir neðan má sjá þessu tvö mörk sem hafa komið eftir frábær innköst Arons Einars og klókan skalla Kára Árnasonar.
Jón Daði Böðvarsson skorar eftir innkast Arons Einars á móti AusturríkiJÁ! NÓG eftir af þessum leik sagði @GummiBen og Ragnar Sigurðsson sannar það! ÞVÍLÍKT MARK! #EMÍsland #ISL #ENG https://t.co/MpAY8VabVE
— Síminn (@siminn) June 27, 2016
JÓN DAÐI! JÓN DAÐI! JÓN DAÐI! 1-0! #EMÍsland #ISL #AUS https://t.co/Zrzekjptj1
— Síminn (@siminn) June 22, 2016