Ísland er stærsta litla fótboltalandið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2016 06:00 Vísir/Samsett
Íbúafjöldi Íslands hefur verið á allra vörum í fótboltaheiminum eftir hetjudáðir íslensku landsliðanna á síðustu árum. Við Íslendingar erum kannski sum hver orðin þreytt á þessum svokallaða útreikningi út frá höfðatölu en sjaldan hefur samanburður stungið jafnmikið í augun og sá sem sýnir samanburð á þeim þjóðum sem hafa skilað bæði karla- og kvennalandsliði í átta liða úrslit á síðustu tveimur Evrópumótum í knattspyrnu. Karlalandsliðið endaði sitt ævintýri á 5-2 tapi á móti gestgjöfum Frakka í átta liða úrslitunum á EM í Frakklandi fyrir rúmri viku og fyrir tæpum þremur árum endaði einnig ævintýri stelpnanna á tapi á móti gestgjöfum Svía. Bæði lið höfðu endurskrifað íslensku fótboltasöguna fyrr í mótinu. Það er mjög fróðlegt að skoða listann yfir þær þjóðir sem hafa átt lið meðal þeirra átta efstu á síðustu tveimur Evrópumótum, EM karla í Frakklandi 2016 og EM kvenna í Svíþjóð 2013. Fótboltarisarnir þrír eru þarna allir, eða Frakkland, Þýskaland og Ítalía. Þær eru allar þjóðir með hátt í tvöhundruðfalda íbúatölu Íslands auk þess að vera miklar fótboltaþjóðir. Þjóðverjar unnu EM-titilinn hjá konunum og Þýskaland er eina þjóðin með bæði liðin í undanúrslitum.Þrjú af átta bara með lið hjá körlunum Frakkar eru með frábær lið hjá báðum kynjum en körlunum mistókst að vinna úrslitaleikinn á heimavelli og konurnar töpuðu óvænt fyrir Dönum í vítakeppni í átta liða úrslitunum eftir þrjá góða sigra í fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu. Ítölsku landsliðin töpuðu síðan bæði í átta liða úrslitunum eins og þau íslensku. Wales, Belgía og Pólland áttu bara lið á karlamótinu og Norðurlandaþjóðirnar Noregur og Danmörk komust bara inn á EM með kvennalið sín. Sænska karlalandsliðið sat eftir í riðlakeppninni og Spánverjar, sem áttu lið í átta liða úrslitum kvenna, töpuðu í sextán liða úrslitum karlakeppninnar. Eftir stendur því litla Ísland við hlið fótboltarisanna þriggja, Frakklands, Þýskalands og Ítalíu. 320 þúsund manna þjóð komast svona langt með bæði landsliðin sín en hinar þrjár eru með á bilinu 60 til 81 milljón íbúa. Knattspyrnusambandi Íslands hefur tekist að koma báðum landsliðum sínum í fremstu röð í vinsælustu íþrótt í heimi og eftir víkingaklappið vinsæla og árangur karlalandsliðsins í Frakklandi er íslenskur fótbolti kominn á heimskortið. Næsta skrefið er síðan að komast enn lengra og inn á sjálft heimsmeistaramótið. Því hefur hvorugu liðinu okkar tekist en af hverju að hætta að láta sig dreyma núna þegar liðin hafa tekið svo mörg stórbrotin skref á síðustu árum?
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Stjörnur ESPN á EM 2016 eru Griezmann, Ísland og Wales Bandaríski íþróttamiðilinn ESPN fjallaði ítarlega um Evrópumótið í Frakklandi á meðan því stóð og var með einn bloggara frá hverri þátttökuþjóð sem sögðu frá keppninni frá sínu sjónarhorni. 12. júlí 2016 09:00 Ragnar Sigurðsson í liði Evrópumótsins hjá Guardian Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins, er í úrvalsliði hins virta enska miðils Guardian. 11. júlí 2016 12:42 Sæti strákanna okkar á listanum yfir markahæstu menn EM Sex leikmenn skoruðu fyrir Ísland á Evrópumótinu í Frakklandi og eftir úrslitaleikinn í gær er ljóst í hvaða sætum þeir enduðu á listanum yfir markahæstu menn keppninnar. 11. júlí 2016 09:30 Ferguson og Moyes völdu engan Íslending í lið mótsins hjá UEFA Enginn íslenskur leikmaður komst í úrvalslið Evrópumótsins hjá UEFA en liðið var birt á heimasíðu evrópska knattspyrnusambandsins í dag. 11. júlí 2016 13:36 Húh-ið okkar Íslendinga í stóru hlutverki í uppgjörsmyndbandi Guardian Evrópumótinu í fótbolta lauk í gær eftir mánaðarfótboltaveislu í Frakklandi. Ísland átti sviðsljósið um tíma á mótinu og verður eflaust alltaf með í umræðunni þegar EM í Frakklandi 2016 verður rifjað upp. 11. júlí 2016 11:30 Aron Einar rétt slapp við að vera mesti síbrotamaðurinn á EM 2016 Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, lét vissulega finna fyrir sér á Evrópumótinu í Frakklandi þar sem Íslands komst alla leið í átta liða úrslitin. 11. júlí 2016 13:15 Enginn náði Hannesi - varði flest skot allra á EM 2016 Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, varð flest skot á EM í Frakklandi sem lauk í gær með úrslitaleik Portúgals og Frakklands. 11. júlí 2016 10:30 Mest lesið Greip bolta sem gæti verið meira en þrjú hundruð milljóna króna virði Sport Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Golf Betri en allar konur í sögu bakgarðshlaupanna Sport „Ég ætla kenna þreytu um“ Sport Vikan grískur harmleikur fyrir gríska eigandann Enski boltinn Sló félagsmet Bayern München en náði ekki Viktori Bjarka Fótbolti Illa vegið að Guðlaugi: „Þetta hlýtur að kalla á rannsókn“ Sport Liverpool vaknaði við vondan draum og endaði taphrinuna með stæl Fótbolti Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Körfubolti 32 ára lögreglukona átti sögulegan klukkutíma Sport Fleiri fréttir Greip bolta sem gæti verið meira en þrjú hundruð milljóna króna virði Mun líklegast aldrei komast yfir þetta „Ég ætla kenna þreytu um“ Betri en allar konur í sögu bakgarðshlaupanna Sló félagsmet Bayern München en náði ekki Viktori Bjarka Vikan grískur harmleikur fyrir gríska eigandann Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Elvar tapaði á grátlegan hátt á móti gömlu félögunum Uppgjör: Keflavík - Haukar 94-84 | Keflvíkingar tóku Íslandsmeistarana Bayern og Real Madrid í hóp liðanna með fullt hús Chelsea bauð upp á markaveislu á Brúnni Liverpool vaknaði við vondan draum og endaði taphrinuna með stæl Fjölga stórmótum landsliða í handboltanum Matthías endar ferilinn á laugardag: „Sérstök og svolítið skrýtin tilfinning“ Allt jafnt í bikarslag íslensku stelpnanna Norsku meistarnir í gini Galatasaray ljónsins Höskuldur og Ólafur sátu fyrir svörum eftir viðburðarríka viku Orri fagnaði í Íslendingaslag í Meistaradeildinni KA-strákarnir fara út með tvö mörk í mínus Sýn Sport með þrettán tilnefningar Nablinn sparkaði upp hurðinni í byrjun þáttarins Illa vegið að Guðlaugi: „Þetta hlýtur að kalla á rannsókn“ Arsenal með langbestu vörn Evrópu Púllarar í ferðaveseni: „Þetta er engin afsökun“ Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn Pedersen með landsliðið til 2029 Tímamót Dags Kára en Japaninn varð heimsmeistari Rýndu í lið Bjarna og Guðlaugs: „Eins og í formannsslagnum um árið“ Framlengdu í leyni eftir bannið Breyta reglum eftir brellu Stjörnunnar Sjá meira
Stjörnur ESPN á EM 2016 eru Griezmann, Ísland og Wales Bandaríski íþróttamiðilinn ESPN fjallaði ítarlega um Evrópumótið í Frakklandi á meðan því stóð og var með einn bloggara frá hverri þátttökuþjóð sem sögðu frá keppninni frá sínu sjónarhorni. 12. júlí 2016 09:00
Ragnar Sigurðsson í liði Evrópumótsins hjá Guardian Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins, er í úrvalsliði hins virta enska miðils Guardian. 11. júlí 2016 12:42
Sæti strákanna okkar á listanum yfir markahæstu menn EM Sex leikmenn skoruðu fyrir Ísland á Evrópumótinu í Frakklandi og eftir úrslitaleikinn í gær er ljóst í hvaða sætum þeir enduðu á listanum yfir markahæstu menn keppninnar. 11. júlí 2016 09:30
Ferguson og Moyes völdu engan Íslending í lið mótsins hjá UEFA Enginn íslenskur leikmaður komst í úrvalslið Evrópumótsins hjá UEFA en liðið var birt á heimasíðu evrópska knattspyrnusambandsins í dag. 11. júlí 2016 13:36
Húh-ið okkar Íslendinga í stóru hlutverki í uppgjörsmyndbandi Guardian Evrópumótinu í fótbolta lauk í gær eftir mánaðarfótboltaveislu í Frakklandi. Ísland átti sviðsljósið um tíma á mótinu og verður eflaust alltaf með í umræðunni þegar EM í Frakklandi 2016 verður rifjað upp. 11. júlí 2016 11:30
Aron Einar rétt slapp við að vera mesti síbrotamaðurinn á EM 2016 Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, lét vissulega finna fyrir sér á Evrópumótinu í Frakklandi þar sem Íslands komst alla leið í átta liða úrslitin. 11. júlí 2016 13:15
Enginn náði Hannesi - varði flest skot allra á EM 2016 Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, varð flest skot á EM í Frakklandi sem lauk í gær með úrslitaleik Portúgals og Frakklands. 11. júlí 2016 10:30