Demókratar draga úr væntingum í þingkosningum Samúel Karl Ólason skrifar 8. nóvember 2016 13:39 Vísir/Getty
Demókratar eru að draga úr væntingum sínum í þingkosningum sem fara fram samhliða forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Undanfarnar vikur höfðu þeir farið að vonast eftir góðri frammistöðu í báðum deildum þingsins og jafnvel var talið að Demókrataflokkurinn gæti náð meirihluta í báðum. Tilkynning James Comey, yfirmanns Alríkislögreglu Bandaríkjanna, um frekari rannsóknir á tölvupóstum Hillary Clinton í síðasta mánuði er sögð hafa komið verulega niður á demókrötum. Samhliða forsetakosningunum er kosið um 34 af 100 sætum á öldungadeild þingsins og öll 435 sætin á fulltrúadeild þingsins. Repúblikanar hafa verið með meirihluta í báðum deildum. Greinendur og aðstoðarmenn þingmanna sem Reuters ræddi við segja líklegt að Repúblikanar muni halda meirihluta sínum í báðum deildum. FiveThirtyEight segir þó að samkvæmt reiknilíkani sínu sé nánast ómögulegt að segja til um hvernig þingkosningarnar fara. Líkurnar hafi þó verið að færast repúblikönum í hag á síðustu dögum.Spá FiveThirtyEight varðandi öldungadeildina.Mynd/Fivethirtyeight.com
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira