Körfubolti

Durant fór illa með sína gömlu félaga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kevin Durant spilaði í nótt sinn fyrsta leik gegn Oklahoma City Thunder sem hann yfirgaf fyrir Golden State Warriors í sumar.

Það er ekki hægt að segja að honum hafi þótt það eitthvað erfitt því hann fór gjörsamlega á kostum og var langstigahæsti leikmaður vallarins með 39 stig í öruggum sigri Golden State. Stephen Curry var með 21 stig og Klay Thompson 18.

Hjá Oklahoma var Victor Oladipo stigahæstur með 20 stig og Russell Westbrook náði aðeins að skora 20 stig að þessu sinni. Westbrook setti aðeins niður 4 af 15 skotum sínum í leiknum.

Golden State búið að vinna fjóra leiki í röð eftir að hafa tapað fyrsta leik sínum í vetur. Oklahoma var aftur á móti að tapa sínum fyrsta leik og er 4-1 eins og Golden State.

Meistarar Cleveland eru aftur á móti 5-0 og fórnarlamb Cleveland í nótt var Boston þar sem LeBron James skoraði 30 stig og gaf 12 stoðsendingar fyrir Cleveland.

Úrslit:

Orlando-Sacramento  102-94

Milwaukee-Indiana  125-107

Minnesota-Denver  99-102

Cleveland-Boston  128-122

Golden State-Oklahoma  122-96

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×