Ásgeir Örn missir af landsleikjunum en fékk nýjan samning hjá Nimes Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2016 13:00 Ásgeir Örn Hallgrímsson. Vísir/EPA
Ásgeir Örn Hallgrímsson verður ekki með íslenska landsliðinu á móti Tékkum í undankeppni EM en fyrsti leikur strákanna okkar í riðlinum fer fram í Laugardalshöllinni annað kvöld. Ásgeir Örn hefur ekki getað æft með íslenska liðinu og nú er ljóst að hægri skyttan verður ekki með liðinu í næstu tveimur leikjum því hann mun heldur ekki ná Úkraínuleiknum um næstu helgi. Ásgeir fór úr lið á fingri og á enn nokkuð í land að verða leikfær. Ásgeir Örn leikur með franska liðinu Nimes og félagið tilkynnti það á heimasíðu sinni að íslenski landsliðsmaðurinn hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Ásgeir Örn kom til Nimes frá Paris Saint-Germain árið 2014 en hann hefur spilað sem atvinnumaður frá árinu 2005. Ásgeir Örn gerði þriggja ára samning við Nimes þegar hann kom 2014 en hann hefur nú framlengt samning sinn til ársins 2019. Ásgeir Örn missti af síðustu þremur leikjum Nimes vegna meiðsla en hann lék síðast með liðinu 5. október síðastliðinn. Ásgeir meiddist þá í leik á móti Toulouse eftir að hafa byrjað mótið mjög vel og skorað 10 mörk úr aðeins 14 skotum í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Ásgeir Örn Hallgrímsson verður 33 ára gamall í febrúar næstkomandi en hann verður því 35 ára þegar þessi nýi samningur hans rennur út.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira