Innlent

Leynd ríkir um kostnað sem þingmenn rukka

Sveinn Arnarson skrifar
Allir reikningar breskra þingmanna sem hið opinbera greiðir eru opinberir almenningi. Því er öfugt farið hér á landi.
Allir reikningar breskra þingmanna sem hið opinbera greiðir eru opinberir almenningi. Því er öfugt farið hér á landi. Vísir/GVA
Árið 2015 lögðu þingmenn fram reikninga vegna starfskostnaðar upp á 7,3 milljónir króna. Fyrstu tíu mánuði þessa árs, kosningaárs, hljóðuðu reikningarnir upp á 8,7 milljónir. Ekki fæst uppgefið frá þinginu í hvað þessir fjármunir fara.

Samkvæmt reglum sem forsætisnefnd þingsins setur sjálf geta þingmenn lagt fram reikninga fyrir vinnu sína. Hver þingmaður fær greiddar um 90 þúsund krónur í starfskostnað sem greiddur er skattur af. Leggi þingmenn fram reikninga fyrir kostnaði minnkar skattstofn starfskostnaðar sem því nemur. Ekki er hægt að sjá hvernig þingmenn nýttu sér þennan möguleika og hver ástæðan er fyrir því að reikningarnir hækka um eina og hálfa milljón á kosningaári.

„Við þurfum að auka tiltrú á Alþingi og því er um að gera að gera þessa reikninga opinbera,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata. „Sumir þingmenn nýta sér ekki að leggja fram reikninga og eru mjög latir í því á meðan aðrir nýta sér þetta form nokkuð vel. En til að auka gegnsæið er enginn vandi að gera þessar upplýsingar opinberar.“

Fréttablaðið hefur einnig óskað eftir gögnum um akstur þingmanna en þingmenn fá greidda aksturspeninga. Þessar greiðslur hafa ekki fengist sundurliðaðar á þingmenn en heildargreiðslur í fyrra vegna aksturs voru um 38,5 milljónir króna.

Forsætisnefnd þingsins mun á næstu vikum fara yfir það hvort breytinga sé þörf á þessu kerfi eftir að þingfararkaup var hækkað um 44 prósent á sunnudeginum eftir kosningar.

Birgitta vonast eftir að laun þingmanna verði straumlínulöguð á næstu vikum. „Við vitum að það er dýrara fyrir þingmenn landsbyggðarkjördæma að vera þingmenn og því er eðlilegt að kostnaður við þeirra störf sé meiri. En við þurfum að opna bókhaldið okkar enn frekar.“ 



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Sveinn Arnarson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×