Norræna byggðin á Grænlandi lét eftir sig glæsileg mannvirki Kristján Már Unnarsson skrifar 11. desember 2016 08:15 Edda Lyberth fararstjóri leikur söguna með tilþrifum við Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð, landnámsjörð Eiriks rauða á Grænlandi. Kirkjan var reist í tilefni afmælis landafundanna árið 2000 í mynd upphaflegar kirkju Þjóðhildar, eiginkonu Eiríks. Stöð 2/Kristján Már Unnarsson.
Norræna byggðin, sem myndaðist á Grænlandi með landnámi Eiríks rauða og mörghundruð Íslendinga fyrir um þúsund árum, skyldi eftir sig stærri steinbyggingar en varðveist hafa á Íslandi frá miðöldum. Rústir stórrar dómkirkju að Görðum, veglegs biskupsseturs og tveggja fjósa, sem gátu hýst um eitthundrað kýr, eru vitnisburður um þvílíkt ríkidæmi að illskiljanlegt er hversvegna byggðin eyddist og fólkið hvarf. Í næstum tveimur þáttum Landnemanna á Stöð 2 verður fjallað um íslenska landnámið á Grænlandi og hinar fornu byggðir heimsóttar. Saga Eiríks rauða verður skoðuð og reynt að grafast fyrir um hvað varð um norræna fólkið. Við Hvalseyjarkirkju á Grænlandi. Eiríkur Hilmisson hljóðmaður og Friðrik Þór Halldórsson kvikmyndatökumaður við upptökur.Stöð 2/Kristján Már Unnarsson.Síðustu heimildir um byggðina eru frá brúðkaupi í Hvalseyjarkirkju árið 1408 og þá virtist allt með felldu. Síðan hefur ekkert spurst til þjóðarinnar. Hvalseyjarkirkja stendur enn að mestu uppi sem veglegasti minnisvarðinn um hina horfnu byggð, sannkallað krúnudjásn. Dómkirkjan að Görðum var hins vegar mun stærri og er talin hafa verið nokkuð heilleg fram á átjándu öld, þegar nýir norrænir landnemar í umboði dönsku krúnunnar byrjuðu að endurnýta grjóthleðslur hennar til að reisa nýjar byggingar. Eftir stendur aðeins grunnur dómkirkjunnar. Engu að síður hefur það sterk áhrif á Íslendinga nútímans að ganga um þessar minjar og kynnast sögunni. Undrun vekur hversu stór björgin eru sem höggvin voru í byggingarnar úr fjallinu fyrir ofan og ráðgáta hvernig tókst að flytja þau úr stað og stafla þeim upp.Íslenskir ferðamenn á vegum Bændaferða hlýða á fróðleiksmola fararstjóra í steikjandi hita við rústir Hvalseyjarkirkju.Stöð 2/Kristján Már Unnarsson. „Eiríkur kvað menn mjög mundu fýsa þangað ef landið héti vel,“ segir í Landnámabók um nafngift Grænlands. „Eiríkur var bara alls ekkert að gabba,“ segir Ingvi Þorsteinsson náttúrufræðingur en í þættinum verður því velt upp hvort nafngiftin hafi nokkuð verið út í hött miðað við veðursældina sem ríkir í Eystribyggð. Skammt frá Brattahlíð, landnámsbæ Eiríks rauða, má enn í dag finna iðagrænar fjallshlíðar og skógi vaxna dali.Skógi vaxnar hlíðar Eiríksfjarðar kvikmyndaðar fyrir Landnemana á Stöð 2. Þarna gæti Eirikur rauði hafa fengið hugmyndina að nafngift Grænlands,Stöð 2/Kristján Már Unnarsson.Landnemarnir eru á dagskrá á mánudagskvöld klukkan 19.20, í opinni dagskrá strax að loknum fréttum. Hér má sjá sýnishorn úr þættinum. Þeir sem misstu af síðasta þætti geta séð hann kl. 16.50 í dag en þættirnir eru endursýndir á Stöð 2 síðdegis á sunnudögum.
Ferðamennska á Íslandi Grænland Landnemarnir Tengdar fréttir Landnámsöskulagið leiðrétt til ársins 877 Leiðrétta þarf helsta tímamæli landnámsins um sex ár eftir að ný rannsókn sýndi að landnámsöskulagið er ranglega tímasett. 9. desember 2016 20:00 Landnemarnir - Þrælahald og kvennabúr Geirmundar heljarskinns „Það segja vitrir menn, að hann hafi göfgastur verið allra landnámsmanna á Íslandi,“ segir Landnámabók um Geirmund heljarskinn. 11. mars 2016 14:23 Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15 Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Landnámsöskulagið leiðrétt til ársins 877 Leiðrétta þarf helsta tímamæli landnámsins um sex ár eftir að ný rannsókn sýndi að landnámsöskulagið er ranglega tímasett. 9. desember 2016 20:00
Landnemarnir - Þrælahald og kvennabúr Geirmundar heljarskinns „Það segja vitrir menn, að hann hafi göfgastur verið allra landnámsmanna á Íslandi,“ segir Landnámabók um Geirmund heljarskinn. 11. mars 2016 14:23
Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15
Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00