Ísland mætir Frakklandi í 16-liða úrslitunum á HM á laugardag en leikurinn fer fram í Lille. Didier Dinart er landsliðsþjálfari Frakklands en hann er á sínu fyrsta stórmóti með liðið sem aðalþjálfari. Hann var lengi lykilmaður í ógnarsterkri vörn Frakklands og hefur síðustu ár verið aðstoðarþjálfari Claude Onesta, fyrrum landsliðsþjálfara.
Dinart þekkir því afar vel til íslenska liðsins. Hann var í liðinu þegar Frakkar urðu Ólympíumeistarar í Peking árið 2008, eftir að hafa unnið Ísland í úrslitaleik.
Sjá einnig: Ísland mætir Frakklandi í Lille | Aðsóknarmet mögulega slegið
Frakkar urðu sömuleiðis Evrópumeistarar tveimur árum síðar og lögðu þá Íslendinga að velli í undanúrslitum. Ísland vann bronsverðlaun á því móti.
„Íslendingar eru með kraftmikla leikmenn og þekkja okkur vel. Leikir gegn Íslandi eru alltaf svolítið sérstakir,“ sagði hann í samtali við franska fjölmiðla í gær. „Við ætlum ekki að kvarta. Við vitum allir að það hefur enginn efni á að gera mistök þegar útsláttarkeppnin er hafin.“
Fyrir leikina í gær kom til greina að Frakkland myndi mæta Íslandi, Makedóníu eða Túnis í 16-liða úrslitunum. Hver af þeim er erfiðasti andstæðingurinn, að mati Dinart?
„Erfiðasta liðið er Ísland því það eru alltaf jafnir leikir gegn Íslandi. En árin líða og liðin breytast með tíð og tíma.“
„Franska liðið verður að einbeita sér að sjálfu sér. Við munum ekki örvænta og undirbúa okkur vel fyrir leikinn. Gefa 200 prósent í hann. Ef að liðið spilar eins og það á að gera og leikmenn sinna sínum hlutverkum þá ætti allt saman að fara vel.“

