Innlent

Segja forsætisráðherra hafa svindlað og beitt blekkingum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja forsætisráðherra hafa svindlað og beitt blekkingum með því að birta ekki tvær skýrslur fyrir kosningar þótt þær hafi verið tilbúnar.

Annars vegar er um að ræða skýrslu nefndar um eignir Íslendinga á aflandssvæðum sem var tilbúin í byrjun september í fyrra en var ekki birt fyrr en 6. janúar. Hins vegar er um að ræða skýrslu um leiðréttinguna sem var tilbúin um miðjan október en ekki birt fyrr en 18. janúar.

Þetta gagnrýndu þingmenn stjórnarandstöðunnar við upphaf þingfundar í dag.

„Ráðherrann er uppvís að því í annað sinn að halda vísvitandi upplýsingum frá almenningi í aðdraganda kosninga sem er fráleitt að þingið sætti sig við, þessa framkomu, og að ráðherra viðhafi slíka leyndarhyggju ítrekað og ráðherra hafi í raun og veru, þáverandi fjármálaráðherra og núverandi forsætisráðherra, beitt þjóð og þing blekkingum. Þetta eru vinnubrögð fyrir neðan allar hellur, virðulegi forseti,” sagði Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna.

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagðist líta á frestun á birtingu skýrslanna sem svindl.

„Ég lít á þennan atburð sem svindl, ég lít á það þannig að hæstvirtur forsætisráðherra hafi snúið á þingið og þjóðina með því að fela þessar skýrslur á þeim tíma þegar á þeim þurfti að halda í aðdraganda kosninga og í stjórnarmyndunarviðræðum. Þetta er alvarlegt mál," sagði Oddný.

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna sagði Alþingi hafa stjórnarksrárvarinn rétt til að fá upplýsingar frá ráðherrum.

„Þetta er auðvitað grafalvarlegt þegar ráðherra telur sig geta tekið sér sjálfdæmi og vald í sínar hendur framhjá stjórnarskrá og þingskaparlögum eins og hann eigi sjálfdæmi um það hvort hann svarar skýrslubeiðnum og þá hvenær.“

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þingmenn hafa tekið ansi djúpt í árinni af hæpnu tilefni.

„Þingmenn eiga rétt á því að koma á framfæri athugasemdum af þessu tagi. Hins vegar held ég að það væri gagnlegt ef við reyndum að finna farveg fyrir þá umræðu,“ sagði Birgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×