Sendiráð Svíþjóðar tísti í gær að starfsmenn þess hlökkuðu til að kynna innflytjendastefnu Svíþjóðar fyrir Trump.
Give the public a break - The FAKE NEWS media is trying to say that large scale immigration in Sweden is working out just beautifully. NOT!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) February 20, 2017
Aftonbladet hefur tekið saman nokkar rangfærslur úr þættinum. Þar ræðir Tucker Carlson við kvikmyndagerðarmanninn Ami Horowitz. Hann gerði innslag fyrir þáttinn þar sem hann ræddi við blaðamann og tvo lögregluþjóna um „ástandið“ í Svíþjóð. Undir lok þáttarins sagði Horowitz að „ekki væri svo langt frá“ fyrstu hryðjuverkaárás Íslamista í Svíþjóð.
Þar var hann að tala um sprengjuárás Taimour Abdulwahab í Stokkhólmi árið 2010. Abdulwahab var sá eini sem lét lífið.
Horowitz hélt því einnig fram að skotárásum og nauðgunum hefði farið fjölgandi frá því að Svíar „opnuðu landamæri sín“.
Aftonbladet bendir hins vegar á að glæpum hafi farið fjölgandi árið 2015, en séu um það bil jafn margir og þeir voru árið 2005. Ofbeldisglæpum hefur farið fækkandi á undanförnum árum. Þá hafi nauðgunum fækkað um tólf prósent árið 2015 frá árinu 2014.
Þar að auki heldur lögreglan utan um fjölda glæpa sem innflytjendur fremja og segja þá tengjast tiltölulega fáum glæpum.
Horowitz sagði flóttamenn vera á bakvið aukna tíðni glæpa í Svíþjóð og að yfirvöld væru að hylma yfir það.
Aftonbladet segir enga tölfræði sem styðji þessa fullyrðingu vera til. Hins vegar sýni rannsókn frá árinu 2005 að innflytjendur voru líklegri til að verða fyrir glæpum en aðrir.
Því var haldið fram á Fox að 160 þúsund flóttamenn hafi komið til Svíþjóðar í fyrra og einungis 500 þeirra hafi fengið vinnu.
Hið rétta er að 30 þúsund flóttamenn sóttu um hæli í Svíþjóð í fyrra. Árið 2015 sóttu hins vegar 164 þúsund flóttamenn um hæli. Það kom þó í ljós í fyrra að af þeim rúmlega hundrað og sextíu þúsund flóttamönnum sem komu til Svíþjóðar hafi einungis fimm hundruð fengið vinnu. Það var í maí í fyrra.
Aftonbladet segir þetta hafa gerst vegna þess að yfirvöld í Svíþjóð hafi ekki sett atvinnu í forgang þegar flóttamannafjöldinn var í hámarki.
Því var einnig haldið fram að í Svíþjóð væru svæði þar sem lögreglan treysti sér ekki til að fara í þar sem þau væru svo hættuleg.
Sú staðhæfing byggir á skýrslu sem lögreglan gaf út í febrúar í fyrra. Hún fjallaði um viðkvæm úthverfi í Svíþjóð. Þar var hins vegar aldrei haldið fram að lögreglan þorði ekki inn á þessi svæði.
„Hann er brjálaður“
Lögregluþjónarnir tveir sem Horowitz ræddi við í innslagi sínu segja svör sín hafa verið tekin úr samhengi og eru mjög ósáttir við hann. Þeir segja viðtalið einnig hafa verið tekið á röngum forsendum.
Það hafi átt að vera um glæpi og svæði með hága glæpatíðni. Innflytjendur og flóttafólk hafi aldrei borið á góma.
Í samtali við Dagens Nyheter segja þeir Horwitz vera brjálaðan.