Skothvellurinn í Kópavogi: Gat ekki setið á sér eftir að hafa fengið vopnið úr viðgerð Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 22. mars 2017 17:05 Málið telst að fullu upplýst. Vísir/Hari
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann sem grunaður var um að hafa hleypt af skotvopni í Grundarhverfi í Kópavogi á níunda tímanum í kvöld. Maðurinn játaði að hafa verið að verki og hefur verið sviptur skotvopnaleyfi. Lögregla var með töluverðan viðbúnað í Kópavogi í gær eftir að hafa fengið tilkynningu um skothvell. Sá sem tilkynnti hvellinn sagðist hafa mætt manni sem hafi haft skotvopn meðferðis. Í ljósi aðstæðna var óskað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra ásamt því að lögreglumenn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem sinntu útkallinu, vopnuðust. Maðurinn fannst ekki þrátt fyrir töluverða leit. Rannsókn málsins hélt áfram í dag og var einn maður handtekinn, grunaður um að hafa skotið af skotvopni innan bæjarmarka. Maðurinn hefur játað að hafa verið að verki, umrætt kvöld, en bar því við að hann hafi verið búinn að fá vopnið úr viðgerð og ekki getað setið á sér að kanna hvort að viðgerðin hafi tekist. Lagt var hald á önnur skotvopn í eigu mannsins og hann sviptur skotvopnaleyfi. Málið telst að fullu upplýst.
Tengdar fréttir Lögreglan með mikinn viðbúnað vegna skothvells sem heyrðist í Kópavogi Málið rannsakað nánar á morgun. 21. mars 2017 23:25 Mest lesið Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Erlent Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Innlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Innlent Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Erlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Sjá meira
Lögreglan með mikinn viðbúnað vegna skothvells sem heyrðist í Kópavogi Málið rannsakað nánar á morgun. 21. mars 2017 23:25