Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Lovísa Arnardóttir skrifar 19. september 2026 10:19 Nú eru ýmis ný nöfn í boði. Vísir/Anton Brink Nú má heita Himbrimi, Aðalsól, Brian, Pá og Matteo í eiginnafn og Haf í millinafn. Ekki má heita Kamban, Heiðarr eða Hólmarr í eiginnafn.
Mannanafnanefnd hefur úrskurðað að fólk megi heita Inuk, Konni, Scarlet, Skógur, Oríana, Vex, Rae, Samíra, Drea, Himbrimi, Olavi, Brian, Amelia, Mir, Pá, Matteo, Bári og Aðalsól í eiginnafn. Þá hefur nefndin einnig samþykkt að fólk megi bera nafnið Haf í millinafni og millinafnið Salts. Hafna Kamban, Hólmarr og Heiðarr Eiginnafninu Kamban var hafnað af nefndinni og einnig nöfnunum Heiðmarr og Hólmarr í eiginnafn. Í úrskurði um nafnið Kamban er vísað til þess að nafnið sé í þjóðskrá skráð sem ættarnafn og að í lögum sé kveðið á um að rétturinn til að bera ættarnafn sé takmarkaður við niðja þeirra sem báru ættarnafn við gildistöku laganna eða á gildistíma fyrri laga um mannanöfn 1991. Samkvæmt sömu grein laganna er óheimilt að taka upp nýtt ættarnafn. Þá er einnig fjallað um heimildir í lögum til að bera ættarnöfn sem millinöfn en þeir sem bera ættarnafn mega, til dæmis, breyta því í millinafn. Þá mega þeir sem hafa rétt til þess að bera ættarnafnið nota það sem millinafn eða hafi eitthvert alsystkini hans, foreldri, afi eða amma borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn. Þá er einnig heimilt að taka upp ættarnafn maka sem millinafn. Því lítur nefndin svo á að ættarnöfn séu ekki heimil sem eiginnöfn og almennt ekki sem millinöfn nema þar sem sérstök heimild er til staðar. Þá bendir nefndin á að ef þau leyfðu nafnið sem eiginnafn yrði það á skrá og öllum heimilt að nota það en ættarnöfn njóti ríkari nafnverndar en eiginnöfn og því geti þau ekki fallist á að nafnið verði notað sem eiginnafn. Errin andræð íslenskri hljóðþróun Hvað varðar Hólmarr og Heiðmarr er vísað til þess í úrskurðum að það brjóti gegn almennum ritreglum að vera með tvö err í endingarlið auk þess sem það sé andstætt íslenskri hljóðþróun. Þá er vísað til þess að ekki sé hefð fyrir rithættinum og að enginn beri þessi nöfn. Því er þeim hafnað. Þá hefur nefndin einnig fallist á föðurkenninguna Knútsdóttir en í úrskurði kemur fram að nefndinni hafi borist beiðni frá konu um að hún gæti kennt sig við föður sinn, Knut, þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hennar verði Knútsdóttir. Nefndin samþykkti það.
Úrskurðar- og kærunefndir Mannanöfn Íslensk tunga Börn og uppeldi Tengdar fréttir Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Mannanafnanefnd hefur samþykkt tólf ný mannanöfn, sjö karlkyns, fjögur kvenkyns og eitt kynhlutlaust nafn. Tvö nafnanna flæktust aðeins fyrir nefndinni. 14. ágúst 2026 14:25 Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir var að skruna á Íslendingabók þegar hún rakst á formóður sína í þrettánda ættlið, Skólastiku Gamalíelsdóttur, sem var uppi á sextándu öld. Una vakti athygli á nafninu á Fésbókinni og opnaði þar ormagryfju fyrir grínara landsins. Nafnið á langa sögu þó aðeins einn Íslendingur hafi borið það. 2. júlí 2026 15:09 Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael Nú má heita Sifjar og Mollý, samkvæmt nýjum úrskurðum mannanafnanefndar, en ekki Mikhael eða Danivaan. 1. júní 2026 15:09 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Mannanafnanefnd hefur samþykkt tólf ný mannanöfn, sjö karlkyns, fjögur kvenkyns og eitt kynhlutlaust nafn. Tvö nafnanna flæktust aðeins fyrir nefndinni. 14. ágúst 2026 14:25
Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir var að skruna á Íslendingabók þegar hún rakst á formóður sína í þrettánda ættlið, Skólastiku Gamalíelsdóttur, sem var uppi á sextándu öld. Una vakti athygli á nafninu á Fésbókinni og opnaði þar ormagryfju fyrir grínara landsins. Nafnið á langa sögu þó aðeins einn Íslendingur hafi borið það. 2. júlí 2026 15:09
Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael Nú má heita Sifjar og Mollý, samkvæmt nýjum úrskurðum mannanafnanefndar, en ekki Mikhael eða Danivaan. 1. júní 2026 15:09