Innlent

Vilja að samþykki verði í forgrunni skilgreiningar á nauðgun

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar og einn flutningsmanna frumvarpsins.
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar og einn flutningsmanna frumvarpsins. Vísir/Ernir
Fjórir þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á almennum hegningarlögum. Með frumvarpinu er lagt til að 1. málsgrein 194. grein almennra hegningarlaga um kynferðisbrot verði breytt á þann veg að samþykki verði í forgrunni skilgreiningar á nauðgun.

Málsgreinin verði svo hljóðandi:

„Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef það er fengið með ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung, eða með því að beita blekkingum eða hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.“

Í greinargerð sem fylgir frumvarpinu segir að með þessu verði horfið frá megináherslu á verknaðaraðferð við nauðgun. 

„Þess í stað verði aukin áhersla lögð á kynfrelsi og sjálfsákvörðunarrétt einstaklings með því að skilgreina nauðgun út frá því hvort samþykki hafi verið fyrir hendi eða ekki. Lagt er til að gerð verði krafa um að samþykki fyrir samræði eða öðrum kynferðismökum hafi legið fyrir þannig að samræði og önnur kynferðismök án samþykkis manns muni varða refsingu. Samþykki þarf að hafa verið tjáð af frjálsum vilja,“ segir í greinargerðinni.

Þar segir jafnframt að þó að önnur frumverp sama efnis hafi áður verið lögð fram á Alþingi sé í því að finna nýja útfærslu og orðalag slíkrar samþykkisreglu. 

„Eðlilegt þykir í ljósi aukinnar áherslu á kynfrelsi að nauðgun verði skilgreind út frá því hvort samþykki hafi verið fyrir hendi eða ekki, fremur en eingöngu út frá því hvaða verknaðaraðferðum var beitt til að ná fram nauðgun.“

Flutningsmenn frumvarpsins eru þau Jón Steindór Valdimarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Jóna Sólveig Elínardóttir og Pawel Bartoszek.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×